Notendaskilmálar korta
Skilmálar vefverslunar Vefverslunar Vesturbyggðar v/ Byltu, Bröttuhlíðar og Íþróttamiðstöðvarinnar á Tálknafirði.
Velkomin í vefverslun Vesturbyggðar sem er í eigu og rekstri Vesturbyggðar kt. 510694 2369.
Aðalstræti 75, 450, Patreksfjörður. Hér eftir verður notast við „við“, „okkur“ og „okkar“ þegar átt er við Vesturbyggð.
Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú verslar í vefverslun okkar. Með því að nota vefverslun Vesturbyggðar samþykkir þú þessa skilmála.
- SKILGREININGAR
Eftirtalin hugtök hafa þessa merkingu þar sem þau koma fyrir í skilmálum þessum:
-
- Fullorðinn eru einstaklingar sem eru 18 ára og eldri.
- Skiptakort eru sundkort með inneign á ákveðinn fjölda ferða
- Tímabilskort eru kort sem gefið er út með nafni og kennitölu einstakling er aðeins til einkanota fyrir þann einstakling.
- Sundkortin veita aðgang að Byltu, Bröttuhlíð eða Íþróttamiðstöðinni á Tálknafirði.
- Kortin eru sjálfsafgreiðslukort
- NOTENDAREGLUR
- Skiptakort:
- hægt er að kaupa sundkort/líkamsræktarkort með inneign á ákveðinn fjölda ferða.
- fleiri en einn einstaklingur getur notað skiptakort.
- skiptakort gildir ekki fyrir hópa.
- gildistími skiptakorta er 48 mánuðir frá kaupdegi.
- Tímabilakort:
- eru kort sem gefið er út fyrir ákveðinn einstakling og er til einkanota fyrir þann einstakling.
- eru aðgreind fyrir börn, fullorðna, aldraða og aðra skilgreinda hópa.
- kortið veitir ótakmarkaðar ferðir yfir fyrirfram skilgreint tímabil.
- GJALDSKRÁ
Vesturbyggð gefur árlega út gjaldskrá fyrir starfsstaði Vesturbyggðar. Gjaldskrá hvers árs er aðgengileg á heimasíðu Vesturbyggðar vesturbyggd.is og hangir uppi á starfsstöðum.
- SKILAREGLUR
Skiptakortum er ekki hægt að skipta yfir í tímabilskort. Ekki er hægt að leggja inn sundkort/líkamsræktarkort tímabundið. Ekki er boðið upp á framselja tímabilskort á aðra kennitölu.
- VANEFNDIR, LOKUN KORTA
Ef korthafi gerist brotlegur við notendareglur samkvæmt skilmálum þessum hefur Vesturbyggð heimild til að afturkalla og loka korti fyrirvaralaust .
- GREIÐSLUVANDAMÁL
Ef vandamál vegna greiðslu koma upp eftirá vegna greiðslu (t.d. vákort) áskiljum við okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntunina.
- MISNOTKUN Á KORTUM
Verði einstaklingur uppvís að því að framvísa/nota tímabilakort sem skráð er á annan einstakling hefur Hörgársveit heimild til þess að loka viðkomandi korti.
- PERSÓNUUPPLÝSINGAR
Við virðum friðhelgi þína og meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Þegar verslað er í vefverslun þarf að gefa upp nafn, heimilisfang og netfang. Þessar upplýsingar eru eingöngu nýttar til að ganga frá pöntun, en kaupsaga er vistuð áfram á öruggu svæði sem er læst. Athugið að kortanúmer eru aldrei geymd á vefsvæðum okkar og einungis er hægt að sjá tegund greiðslu, ef fletta þarf upp pöntun. Við deilum aldrei persónuupplýsingum með þriðja aðila.